Fara í efni
Fjölskyldumyndir og saga Garðshyrninga
Myndir
Garðshyrningasagan
Brekkugötu- og Beitarhúsaárin
Dalsgerði og Álfheimar
Lerkilundarárin
Myndir eftir 2003
Ýmsar myndir
Garðshorn
Um Garðshorn
Garðshornsbúar
Ábúendaskrá
Inngangur
Fyrstu ábúendur
Gunnar meðhjálpari
Jón ríki og ættmenni hans
Nágrannabæirnir
Aftur í Garðshorn
Ýmsir ábúendur 1882-1899
Guðmundur, Steinunn og afkomendur
Nýjustu ábúendur í Garðshorni
Saga bygginga
Garðshorn á Þelamörk
Úttekt 1899
Leigusamningur 1905
Garðshornsbærinn um og eftir 1900
Húsaskipan 1940-1990
Önnur úthýsi
Neðri hæð íbúðarhússins
Efri hæðin
Kjallarinn
Ættmennin
Ættartré Garðshornssystkinanna 1943-1954
Föðurættin
Inngangur og heimildir
Flöguselsættin
Ættforeldrar í Flöguseli og börn þeirra
Sigfús Benediktsson
Guðrún Friðfinnsdóttir frá Stóragerði
Hjúskapur og ævilok Sigfúsar og Guðrúnar
Hrakhólafólk á 19. öld
Sigurlaug Sigfúsdóttir
Jóhann Sigurðsson
Ættartré Garðshornssystkinanna 1943-1954
Guðjón Sigfússon
Æsustaðaættin
Foreldrar og æska Steinunnar langömmu
Úr sóknarlýsingu Hólssóknar í Eyjafirði
Systkini Steinunnar Önnu Sigurðardóttur
Viðtal við Gunnlaug og Svanfríði
Gásaættin
Stefán V. Sigurjónsson
Kristfinnur Guðjónsson
Úr „Konan í dalnum og dæturnar sjö“
Laugalandsfólkið
Jarðir í Glæsibæjarhreppi um aldamótin 1900
Guðmundur, Steinunn og Garðshornssystkinin elstu
Helga og Pálmi í Garðshorni
Kári Larsen
Frímann og Margrét á Hamri og Efstalandi
Arnbjörg og Valdemar á Rauðalæk, Kotum og Bólu
Bréfin til Boggu
Bréfin frá 1911 til 1920
Bréfin frá 1921 til 1936
Móðurættin
Barna-Beta
Inngangur
Uppruni og fyrstu börn Elísabetar Jónsdóttur
Jóns þáttur beykis
Útúrdúr um Otta Sveinsson
Elíasar þáttur
Um Sigmund Erlingsson í Vigur
Markúsar þáttur
Ævilok og ættingjar Elísabetar
Skarphéðinn Hinrik Elíasson/Sigmundsson
Petrína og systurnar frá Látrum
Um Skarphéðin og Petrínu
Af Pálínu Árnadóttur og systkinum
Um Skarphéðin og Pálínu
Friðgerður Skarphéðinsdóttir
Bærinn í Botni í Mjóafirði
Um börn Friðgerðar
Anna Skarphéðinsdóttir
Um börn Önnu
Karítas Skarphéðinsdóttir
Petrína Sigrún Skarphéðinsdóttir
Sigmundur Viktor Skarphéðinsson
Sigurjón Skarphéðinsson Svanberg
Bergþóra Skarphéðinsdóttir
Jónubók
Inngangur
Ytribúðafólkið
Barneignir Jónu Jónsdóttur
Afkomendur Jónu
Hafliði Sæmundur Bjarnason
Bjarni Bjarnason
Sigurjón Sigurbjörnsson
Matthildur Guðbjörg Jónsdóttir
Systkini Jónu Jónsdóttur og afkomendur þeirra
Ingimundur Jónsson
Sigurður Jónsson
Vigdís Steinunn Jónsdóttir
Kristín Guðríður Jónsdóttir
Ágúst Guðbjörn Jónsson
Bjarni Þorláksson og fólkið hans
Bjarni Þorláksson
Margrét Þorláksdóttir
Mikael Þorláksson
Ólafur Þorláksson
Þorbjörg Þorláksdóttir
Annað efni
Garður í Garðshorni
Húsið í skóginum 2011
Húsið í skóginum 2012
Húsið í skóginum 2013
Húsið í skóginum 2014
Húsið í skóginum 2015
Húsið í skóginum 2016
Húsið í skóginum 2017
Ýmsar greinar
Hæsti foss í Eyjafirði
Aðalheiður Jónsdóttir
Húsbruni á Grjótgarði
Um fósturbörn og ómaga
Barnafræðsla í Hörgársveit 1910-1963
Sigurlaug Sigfúsdóttir
Jóhann Sigurðsson
Um timburhúsið á Efri-Rauðalæk
Torfbærinn í Baugaseli
Um Brynjólf og Laufeyju í Efstalandskoti
Heimsókn úr Vesturheimi
Ungmennafélögin í Hörgársveit í byrjun 20. aldar
Margt er sér til gamans gert
Gömul býli og bæjanöfn í Hörgársveit
Um Arnþóru Ólafsdóttur
Glefsur úr dagbókum Frímanns Pálmasonar 1921-1946
Lestrarfélag Þelamerkur
Myndir frá Neðri-Rauðalæk
Dagbókarfærslur Frímanns Pálmasonar 1921 til 1946
Minnisbók fyrir árið 1921
Janúar 1921
Febrúar 1921
Mars 1921
Apríl 1921
Maí 1921
Júní 1921
Júlí 1921
Minnisbók fyrir árið 1922
Minnisbók fyrir árið 1923
Minnisbók fyrir árið 1932
Minnisbók fyrir árið 1934
Október 1934
Nóvember 1934
Desember 1934
Minnisbók fyrir árið 1935
Janúar 1935
Febrúar 1935
Mars 1935
Minnisbók fyrir árið 1936
Janúar 1936
Febrúar 1936
Mars 1936
Apríl 1936
Maí 1936
Júní 1936
Júlí 1936
Ágúst 1936
September 1936
Október 1936
Minnisbók fyrir árið 1942
Apríl 1942
Maí 1942
Júní 1942
Júlí 1942
Ágúst 1942
September 1942
Minnisbók fyrir árið 1943
September 1943
Október 1943
Nóvember 1943
Desember 1943
Minnisbók fyrir árið 1944
Janúar 1944
Febrúar 1944
Mars 1944
Apríl 1944
Maí 1944
Júní 1944
Júlí 1944
September 1944
Október 1944
Nóvember 1944
Desember 1944
Minnisbók fyrir árið 1945
Janúar 1945
Febrúar 1945
Mars 1945
Apríl 1945
Maí 1945
Júní 1945
September 1945
Október 1945
Nóvember 1945
Desember 1945
Minnisbók fyrir árið 1946
Janúar 1946
Febrúar 1946
Mars 1946
Apríl 1946
Kveðskapur Guðfinnu Bjarnadóttur
Minning um Bjarna Frímannsson
Heimagerðar lífsreynslubögur
Vestfjarðaljóð
Búkonuvísur
Húsfreyjuljóð
Vísur um heimilisfólkið í Botni
Til Þelamerkurskólans
Kveðskapur Pálma Frímannssonar
Lofgjörð til Reykjavíkur
Raunakvæði
Ástand í pólitíkinni
Jólasálmur
Andleysi
Um Kanasjónvarpið
Vorljóð
Lánsbotnar
Piparsveinalíf
Efnahagsmál
Um ástina
Til meinatækna
Hljóðskrár
Viðtöl
Barnahjal og söngur
Bjössi afi
Upplestur fyrir barnabörnin
Íslenska
Forsíða
/
Myndir
/
Ýmsar myndir
/
Vesturættarmyndir
Vesturættarmyndir
201 stk.
23.10.2020
Ýmsar myndir sem tengjast móðurfjölskyldunni með einum eða öðrum hætti
Bolungarvík
Þessi gamla mynd úr eigu Hjörleifs Hafliðasonar er sögð vera á öðru hverju heimili í Bolungarvík
Bolungarvík
Mynd tekin frá Ósvör 2016
Bolungarvík
Mynd tekin af Bolafjalli.
Sólarlag við Bolungarvík
Sólarlag við Bolungarvík frá 2016
Bolungarvík
Ingimundarbúð er í hringnum. Þar bjó Ingimundur Jónsson bróðir Jónu langömmu
Bolungarvíkurmalir
Mynd úr bók Hjálmars R. Bárðarsonar
Malirnar í Bolungarvík
Malirnar, líklega um 1940. Báturinn sem næstur er á myndinni hét Húni og var í eigu Sigurgeirs Sigurðssonar sem Bjarni Bjarnason vann hjá fyrst eftir að hann flutti utan úr Skálavík um 1940. Myndina tók Hjálmar R. Bárðarson.
Bolungarvíkurbakkar
Bakkarnir eru fyrir utan Malirnar í Bolungarvík. Ófæra heitir bjargið sem nær ofan í sjó, Traðarhyrna yfir.
Garðstaðir og Ögur
Garðstaðir eru hægra megin en kirkjustaðurinn Ögur hægra megin. Skarphéðinn Elíasson langafi var alinn upp á Garðstöðum og Petrína langamma var í vist á Ögri frá fermingaraldri.
Breiðaból í Skálavík
Breiðaból í Skálavík kemur mikið við sögu afkomenda Jónu Jónsdóttur. Þar bjó Jón langalangafi síðustu áratugina og þar ólst Hafliði dóttursonur hans upp hjá afa sínum og ömmu. Hann var verðlaunaður fyrir björgunarafreki þegar snjóflóð féll á Breiðabólsbæi 1910.
Botn í Súgandafirði
Elísabet Jónsdóttir, Barna-Beta, móðir Skarphéðins langafa, fæddist og ólst upp í Botni í Súgandafirði. Elísabet eignaðist 8 börn með 5 eða 6 mönnum, Þeir voru 5 ef Sigmundur í Vigur var faðir tveggja drengja, sem báðir voru skírðir Skarphéðinn, en hvorugur var þó kenndur Sigmundi.
Vigur í Ísafjarðardjúpi
Barna-Beta var í Vigur þegar hún eignaðist Skarphéðin sem var annaðhvort Elíasson, eins og kirkjubókin segir, eða sonur Sigmundar óðalsbónda í Vigur eftir því sem Skarphéðinn hafði sjálfur eftir Sigmundi.
Skálavík
Hér er horft frá Meiri-Bakka til austurs í átt til Breiðabóls
Skálavík
Þessi Skálavík er utan við Bolungarvík. Hér er horft frá Minni-Bakka til suðurs eða suðvesturs.
Skálavík
Skálavík, horft til Öskubaks
Botn í Mjóafirði
Botn í Mjóafirði. Þessi óskýra mynd er/var uppi á vegg í skólahúsinu í Reykjanesi
Botn í Mjóafirði
Mynd af málverki eftir Baldur Eiríksson (Dverg) sem hann málaði fyrir Kristin Jónsson eftir ljósmynd en Baldur hafði aldrei komið vestur í Mjóafjörð. Kristinn gaf Guðfinnu í Garðshorni, uppeldissystur sinni, myndina á fertugsafmæli hennar 2. janúar 1956.
Botn í Mjóafirði 1974
Í Botni í Mjóafirði ólst Friðgerður Skarhéðinsdóttir upp í nokkur ár hjá Sigríði Markúsdóttur föðursystur sinni en fjölskyldan flutti síðan í Hörgshlíð í Mjóafirði. Í Botni var Guðfinna Bjarnadóttir, dóttir hennar, líka fóstruð frá 8 eða 9 ára aldri hjá vandalausu fólki.
Botn í Mjóafirði 1988
Botn er löngu farinn í eyði og smám saman falla húsin og grær yfir tóftirnar.
Botn í Mjóafirði 2006
Gunnar Frímannsson tók sig til og teiknaði upp húsaskipan í Botni. Hann stendur hér á tóftunum og reynir að átta sig á hvað var hvað.
Botn í Mjóafirði - grunnmynd
Með hjálp Halldórs Kristjánssonar glerslípunarmeistara á Akureyri - Dóra slíp - var þessi grunnmynd gerð með skýringum Halldórs. Hann var fóstraður í Botni eins og Guðfinna, Kristinn flugmarskálkur, Jóhannes Guðnason síðar bóndi í Svansvík og Friðgerður dóttir hjónanna í Botni.
Jónasínuhús 1988
Jónasínuhús er kennt við fyrsta eiganda hússins en þá stóð það niðri á Mölum en var flutt ofar í bæinn. Sumir Bolvíkingar kannast reyndar ekkert við þetta nafn. Í húsinu bjuggu Friðgerður og Bjarni, amma og afi, 1941-1943.
Jónasínuhús 2013
Hér er Guðmundur Óli Kristinsson byrjaður að huga að viðgerðum á húsinu en foreldrar hans, hjónin frá Dröngum, voru síðustu íbúar í húsinu.
Jónasínuhús 2016
Viðgerð er lokið og húsið orðið bæjarprýði.
Ættarmótsgestir í Heydal 2013
Fremst f.v.: Karitas Hafliðadóttir, Anna Jóna Hálfdánsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Kristín Halldórsdóttir, Helga Frímannsdóttir. Fyrir aftan: Guðbrandur Benediktsson, Gunnar Frímannsson, Guðlaug Þorkelsdóttir, Helga Jóna Þorkelsdóttir, Philippe Ricart, Jóhanna Hálfdánsdóttir, Hallgrímur Kristjánsson, Sigríður Hálfdánsdóttir, Jón Ólafur Skarphéðinsson, Katrín Þorkelsdóttir, Börkur Skúlason, Hólmfríður Jónsdóttir, Stefán Þórarinsson og Stefán Vilhjálmsson
Sigmundur Erlingsson
Sigmundur Erlingsson óðalsbóndi í Vigur er sagður hafa verið réttur faðir Skarphéðins Elíassonar. Samkvæmt kirkjubókum dó Sigmundur barnlaus. Skarphéðinn bróðir mömmu sagðist vera ættlaus maður því að afi hans hefði dáið barnlaus.
Jóhanna Hálfdánsdóttir og Philipp Ricart á Gunnarseyri
Jóhanna og Philip eru reyndar ekki á Gunnarseyri heldur Eyri við Skötufjörð. Húskofi sem Magnús Guðmundsson byggði handa tengdaföður sínum stóð þar skammt frá og var kallaður Gunnarseyri - af einhverjum ástæðum. Húsið var flutt burt eftir nokkur ár eftir að Magnús hafði búið þar sjálfur með Katítas sinni.
Skarphéðinn Elíasson
Skarphéðinn Elíasson á fullorðinsárum. Hann bjó fyrst með Petrínu Ásgeirsdóttur í Æðey og þar fæddust dætur þeirra. Þau voru nýflutt inn í Ögursveit þegar hún dó. Hann giftist Pálínu Árnadóttur og fyrstu árin voru þau í húsmennsku í Ögursveit, bjuggu nokkur ár í Efstadal, síðan fá ár á Gunnarseyri í Skötufirði en þaðan fluttu þau í Hnífsdal. Þau bjuggu um tíma í Reykjavík þar sem Pálína lést. Eftir það var Skarphéðinn hjá dætrum sínum en lengst og síðast var hann hjá Karítas dóttur sinni í nágrenni Reykjavíkur.
Karítas Skarphéðinsdóttir og fjölskylda
Efri röð: Aðalheiður Magnúsdóttir, Hrólfur Jónsson, Skarphéðinn Elíasson, Pálína Magnúsdóttir og Einar Magnússon Neðri röð: Kristbjörg Gunnarsdóttir, Halldóra Gunnarsdóttir, Alda Steina Tómasdóttir (fósturd. Karítasar), Karítas Skarphéðinsdóttir, Guðbrandur Grétar Svanberg og Birgir Gunnarsson
Karítas Skarphéðinsdóttir og fjölskylda
Reisla Skarphéðins
Helga Jóna Þorkelsdóttir sýnir ættarmótsgestum 2013 reislu sem Skarphéðinn langafi hennar hafði átt
Jón beykir og fjölskylda
Jón Jónsson beykir í Reykjavík var hálfbróðir Skarphéðins Elíassonar, sonur Barna-Betu. Jón ólst mikið upp hjá föður sínum á Folafæti, fór til Noregs og lærði beykisiðn. Með honum á myndinni eru Anna Marie kona hans og Magnús sonur hans.
Jón beykir og vinnufélagar
Jón Jónsson beykir er í ljósa jakkanum en lærlingur hans og bróðursonur, Sigurjón Skarphéðinsson Svanberg, stendur fyrir aftan hann hægra megin á myndinni
Jón beykir og vinnufélagar
Jón Jónsson beykir er í ljósa jakkanum en lærlingur hans og bróðursonur, Sigurjón Skarphéðinsson Svanberg, stendur fyrir aftan hann hægra megin á myndinni
Elías Elíasson
Elías Elíasson var hálfbróðir Skarphéðins Elíassonar ef kirkjubókin lýgur ekki.
Elías Elíasson
Elías Elíasson hálfbróðir Skarphéðins
Elías Elíasson, Jensína og börn
Jensína H. Jensdóttir, Ólöf Guðrún, Kristján Sigurður, Aðalsteinn og Elías Elíasson
Sigríður Halldórsdóttir og Guðjón Gunnarsson
Sigríður Halldórsdóttir og Guðjón Gunnarsson frá Eyri í Ingólfsfirði. Móðir Sigríðar var Anna Ásgeirsdóttir frá Látrum í Mjóafirði, systir Petrínu langömmu, móður Friðgerðar Skarphéðinsdóttur. Synir Sigríðar og Guðjóns, Ingólfur og Gunnar, áttu börn sem voru skólasystkin Garðshornsbarnanna á Reykjaskóla. Þau vissu þá ekki um skyldleikann.
Elías og Jensína
Elías Elíasson og Jensína H. Jensdóttir eftir að þau fluttu til Reykjavíkur þar sem þau bjuggu síðustu áratugina
Meirahraunsfólkið
Bjarni afi, Fríðgerður amma og Skarphéðinn í Meirahrauni í Skálavík. Myndina tók Hjálmar R Bárðarson og hún er varðveitt á Þjóðminjasafni
Meirahraun
Ferðafélagar Hjálmars R Bárðarsonar við Meirahraun í Skálavík. Lengst til hægri er Bjarni Bjarnason.
Látur eða Látrar
Petrína Ásgeirsdóttir langamma fæddist á Látrum í Mjóafirði, ein af mörgum systrum. Þær voru dætur Ásgeirs Kristjánssonar og Friðgerðar Þórarinsdóttur.
Sigríður Markúsdóttir og Guðmundur Guðmundsson
Sigríður Markúsdóttir og Guðmundur Guðmundsson bjuggu í Botni og Hörgshlíð í Mjóafirði. Sigríður var hálfsystir Skarphéðins langafa og fóstraði Friðgerði dóttur hans frá 7 ára aldri eða svo
Friðgerður Skarphéðinsdóttir
Friðgerður amma á yngri árum. Myndin líklega tekin á Ísafirði þegar hún var þar í vist um tvítugt.
Anna Skarphéðinsdóttir
Anna og Friðgerður amma voru eineggja tvíburar en ólust upp hvor á sínum stað. Anna var stærri við fæðingu og líklega lífvænlegri og því var henni komið í fóstur á Laugalandi í Skjaldfannardal.
Friðgerður Skarphéðinsdóttir 1942
Þessi mynd af Friðgerði ömmu var tekin sumarið 1942 þegar alsysturnar þrjár hittust í Reykjavík
Skarphéðinsdætur
Tvíburasysturnar Friðgerður og Anna og lengst til hægri er yngsta alsystirin Karítas.
Alsystur og hálfsystir
Karítas, Bergþóra, Friðgerður og Anna Skarphéðinsdætur. Friðgerður og Anna fæddust 1888, Karítas 1890 og Bergþóra 1910.
Skarphéðinsdætur í Bolungarvík
Frá vinstri: Friðgerður, Bergþóra, Karítas og Anna Skarphéðinsdætur. Bergþóra heldur á dóttur sinni og önnur er við hlið Karítasar. Fremstur er Grétar Svanberg Sigurjónsson sem ólst upp hjá Önnu, föðursystur sinni.
Karítas Skarphéðinsdóttir
Karítas var yngst alsystranna. Hún giftist ung, eignaðist mörg börn og gerðist forvígiskona í réttindabaráttu verkafólks fyrir vestan og fyrir sunnan. Hún var kommúnisti. Þegar hún trúlofaðist Magnúsi Guðmundssyni "fora" (forsöngvara) var hún 16 ára en hann 37 ára. Hann var þá nýorðinn ekkjumaður, fjögurra barna faðir.
Þorsteinn H. Gunnarsson (1946-2026)
Steini var dóttursonur Karítasar Skarphéðinsdóttur, sonur Aðalheiðar. Við vorum bekkjarbræður á Reykjaskóla veturna 1962 - 1964 en vissum ekki að við værum þremenningar. Óvíst hverju það hefði breytt en það veit ég að móður minni hefði þótt gaman að vita af þessu.
Bergþóra Skarphéðinsdóttir
Bergþóra var yngsta barn Skarphéðins Elíassonar.
Bergþóra Skarphéðinsdóttir
Bergþóra Skarphéðinsdóttir eignaðist 4 dætur með Kjartani manni sínum, Pálínu, Hrönn, Eddu og Sjöfn
Anna og Friðgerður Skarphéðinsdætur
Varla að ég trúi því að konan til hægri sé Friðgerður amma.
Anna, Friðgerður og Grétar Svanberg
Anna og Friðgerður Skarphéðinsdætur með Grétar Svanberg son Sigurjóns Skarphéðinssonar Svanberg hálfbróður þeirra en Anna ól hann upp fram yfir fermingu
Hafliði Bjarnason
Hafliði Sæmundur Bjarnason hét hann fullu nafni og var eldri bróðir Bjarna afa. Hafliði ólst upp hjá Jóni afa sínum á Breiðabóli í Skálavík. Hann var sútari að mennt og starfaði í Reykjavík á efri árum, virkur í Leikfélagi Reykjavíkur og var dyravörður í Iðnó.
Hafliði S Bjarnason
Hafliði S Bjarnason
Hafliði S Bjarnason
Hafliði 75 ára
Hafliði S Bjarnason
Hafliði S Bjarnason
Hafliði Bjarnason og fjölskylda
Hafliði Bjarnason, Egill, Lilja og Halldór Hafliðabörn og Sigríður Bachmann
Halldór Hafliðason
Halldór var annar sona Hafliða Bjarnasonar. Hann var vélvirki að mennt og starfaði við þá iðn og fleira, var ötull baráttumaður fyrir íþróttaiðkun. Hinn sonur Hafliða hét Egill Bachmann.
Halldór Hafliðason og Hafliði
Hafliði sonur Halldórs er íþróttafræðingur og hefur verið forstöðumaður Vesturbæjarsundlaugarinnar.
Lilja Bachmann Hafliðadóttir
Lilja var kjördóttir Hafliða Bjarnasonar bróður Bjarna afa
Bjarni Bjarnason
Bjarni afi ólst upp hjá móður sinni fyrstu árin en faðir hans fórst í róðri á Bolungarvík tæpum 8 mánuðum áður en hann fæddist. Bjarni var settur í fóstur til vandalausra 7 eða 8 ára gamall en fór að vinna fyrir sér eftir fermingu. Hann var við búskap en einnig landmaður við fiskveiðar, var sjóveikur. Eftir að amma dó var hann verkamaður í Hnífsdal og á Akranesi þar sem hann bjó síðustu 30 árin.
Bjarni Bjarnason
Afi og amma voru í húsmennsku á Hóli í Bolungarvík þegar mamma fæddist. Síðan áttu þau heima á Grundum, bjuggu nokkur á á Hanhóli og fluttu þaðan út í Meira-Hraun í Skálavík þar sem þau voru nokkur ár. Eftir að hafa verið vetrarpart í Keflavík vestra fluttu þau inn í Bolungarvík þar sem þau bjuggu 2 - 3 ár eða þangað til amma dó.
Bjarni Bjarnason
Bjarni Bjarnason
Bjarni Bjarnason
Bjarni afi aldraður í heimsókn á Akureyri. Myndina tók Ketill Helgason.
Bjarni og Friðgerður með Guðfinnu
Þessi mynd af Bjarna afa, Friðgerði ömmu og mömmu hefur veriði tekin á ljósmyndastofu um 1920
Bjarni afi, mamma og Friðgerður amma
Bjarni afi, mamma og Friðgerður amma
Bjarni afi, mamma og Friðgerður amma
Myndin af þeim hjónum með elsta barnið er líklega tekin um 1918. Þau eignuðust 11 börn en aðeins 4 komust á legg. Mamma fæddist 1916 en síðan fæddust 5 börn sem dóu í eða skömmu eftir fæðingu áður en Jóna frænka fæddist 1921. Þá fæddust tveir skammlífir drengir áður en Jón Ólafur fæddist 1925 og Skarphéðinn 1927. Myndin er gerð með gervigreind sem gengur lengra í skáldskapnum en sú sem lagfærði hina myndina. Takið eftir stólarminum sem er horfinn og skóm mömmu sem hafa verið skáldaðir upp.
Elísabet Guðmundsdóttir frá Meirahrauni
Elísabet var trúlofuð Sigurði bróður Jónu langömmu þegar hann fórst í róðri frá Bolungarvík ásamt Bjarna Þorlákssyni mági sínum. Elísabet fæddi dóttur þeirra, Sigurðu, 8 mánuðum síðar og var með hana hjá tengdaforeldrum sínum á Breiðabóli fyrstu árin. Tveimur árum eftir að tengdamóðir hennar dó eignaðist hún son, Ágúst Guðbjörn, með tengdaföður sínum.
Elísabet Guðmundsdóttir frá Meirahrauni
Elísabet giftist Gísla skálda í Bolungarvík og átti með honum nokkur börn, m.a. Hjört rithöfund föður Gísla Braga múrara og bæjarfulltrúa á Akureyri, Reyni o.fl. Sigurða dóttir Elísabetar var amma Elísabetar Hjörleifsdóttur hjúkrunarfræðings á Akureyri.
Elísabet og Sigurða
Elísabet og Sigurða dóttir hennar þóttu afburða duglegar fiskvinnslukonur.
Synir Sigurðu Sigurðardóttur
Hjörleifur Hafliðason og hálfbræður hans Sturlaugur, Ágúst og Sigurður Jóhannssynir
Ágúst Jóhannsson
Ágúst sonur Sigurðu var bílstjóri og þungavinnuvélstjóri á Hvammstanga, bóndi á Sporði í Víðidal um tíma.
Hjörleifur Hafliðason og Halldóra
Hamar á Langadalsströnd
Ágúst Jónsson og bræður hans voru að hluta fóstraðir á Hamri. Hér stendur Hávarður bóndi fyrir dyrum.
Agúst Guðbjörn Jónsson
Agúst Guðbjörn Jónsson var sonur Jóns langalangafa á Breiðabóli, hálfbróðir Jónu langömmu og móðurbróðir Bjarna afa. Ágúst rak bílaútgerð á Blönduósi.
Margrét Jónsdóttir
Margrét var gift Ágústi Jónssyni á Blönduósi, Akureyringur.
Breiðaból á Blönduósi
Ágúst Jónsson kallaði hús sitt á Blönduósi Breiðaból eftir fæðingarstað sínum í Skálavík.
Börn Ágústs og eiginkona
Jakob Ágústsson, Margrét Jónsdóttir, Kristín Ágústsdóttir og Sigurður Ágústsson
Shell-bensínstöðin á Blönduósi
Shell-bensínstöðin á Blönduósi sem Ágúst rak áður en vegurinn gegnum þorpið breyttist
Bílar Ágústs
Fyrstu bílar Ágústs Jónssonar á Blönduósi
Sigurður og Helga
Sigurður Ágústsson hittir Helgu Frímannsdóttur við sumarhús sitt í Flögu í Vatnsdal
Elísabet, Sigurða og Jóhann
Elísabet Guðmundsdóttir, dóttir hennar Sigurða Sigurðardóttir og Jóhann Jensson tengdasonur
Jóhann og Sigurða
Jóhann Jensson og Sigurða Sigurðardóttir. Sigurða var dóttir Sigurðar bróður Jónu langömmu.
Lína Dalrós og Jón Ásgeir
Lína Dalrós var elsta dóttir Elísabetar Guðmundsdóttur
Afkomendur Elíasar og Jensínu
Afkomendur Elíasar hálfbróður Skarphéðins og Jensínu konu hans.
Systurnar Anna, Friðgerður, Karítas og Bergþóra Skarphéðinsdætur
Systurnar Anna, Friðgerður, Karítas og Bergþóra Skarphéðinsdætur. Ekki liggur fyrir hvar eða hvenær þessi mynd var tekin.
Jón Ólafur Jónsson
Jón Ólafur Jónsson var aldrei giftur Önnu Skarphéðinsdóttur en þau áttu mörg börn saman áður en hann fórst á sjó um það leyti sem yngsta barnið, Gunna frænka í Bolungarvík, fæddist.
Jón Ólafur Jónsson
Jón Ólafur fórst á sjó fáum mánuðum eftir að Guðrún, yngsta barn þeirra Önnu Skarphéðinsdóttur fæddist.
Anna Skarphéðinsdóttir og barnabörn
Anna Skarphéðinsdóttir með barnabörnin Bjarna Halldórsson og Guðlaugu Þorkelsdóttur
Anna og börn
Sitjandi: Guðrún, Anna, Petrína. Standandi: Þorkell og Hrólfur. Á bak við Þorkel sést mynd af Bjarna Hjaltalín.
Anna Skarphéðinsdóttir og fjölskylda
Sitjandi Margrét, Petrína, Anna og Guðrún. Standandi Þorkell, Halldór, Hrólfur og Hálfdán
Anna Skarphéðinsdóttir og fjölskylda
Sitjandi: Petrína, Anna og Guðrún. Standandi: Halldór, Þorkell, Margrét, Hrólfur og Hálfdán
Anna Skarphéðinsdóttir og fjölskylda
Sitjandi: Petrína, Anna og Guðrún. Standandi: Halldór, Þorkell, Margrét, Hrólfur og Hálfdán
Bergþóra, Kjartan og dætur
Bergþóra, Kjartan og dæturnar Pálína, Hrönn, Edda og Sjöfn
Bjarni afi o.fl.
Bjarni Bjarnason, Anna Skarphéðinsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Hrólfur Jónsson og Grétar Svanberg fyrir framan
Vinaminni
Anna Skarphéðinsdóttir bjó um tíma í þessu húsi með börnum sínum
Laugaland í Skjaldfannardal
Ása Ketilsdóttir húsfreyja á Laugalandi segir ættarmótsgestum frá skrúðgarðsrækt sinni
Hrólfur Jónsson
Hrólfur var elsti sonur Önnu Skarphéðinsdóttur og Jóns Ólafs Jónssonar.
Hrólfur Jónsson
Hrólfur Jónsson starfaði hjá Einari Guðfinnssyni og vann þar ýmis störf, m.a. á trésmíðaverkstæði
Bjarni Jón Hjaltalín Jónsson
Bjarni var sonur Önnu Skarphéðinsdóttur og Jóns Ólafs Jónssonar. Bjarni lést úr botnlangabólgu innan við þrítugt.
Petrína Jónsdóttir
Petrína var dóttir Önnu Skarphéðinsdóttur systur Friðgerðar ömmu. Petrína var gift Hálfdáni Einarssyni skipstjóra í Bolungarvík.
Guðrún Jónsdóttir
Gunna frænka var yngst barna Önnu Skarphéðinsdóttur og Jóns Ólafs Jónssonar, fæddist skömmu áður en hann fórst á sjó
Gunna frænka í Bolungarvík
Myndin var tekin ekki löngu áður en hún dó, 97 ára gömul. Gunna var langminnug en sagði, þegar myndin var tekin, að hún væri farin að finna fyrir því að hún ætti erfitt með að koma fyrir sig nöfnum.
Guðrún Jónsdóttir, Þorbergur Kr. og Jóna Bjarnadóttir
Guðrún Jónsdóttir, Þorbergur Kr. og Jóna Bjarnadóttir
Guðrún Jónsdóttir og Anna Jóna Hálfdánsdóttir
Gunna frænka í Bolungarvík með systurdóttur sína, Önnu Jónu dóttur Hálfdáns og Petrínu.
Guðrún Jónsdóttir og Jóna Bjarnadóttir
Systradæturnar Guðrún Jónsdóttir og Jóna Bjarnadóttir, Jóna væntanlega hægra megin, tveimur árum eldri.
Halarófumynd úr Bolungarvík
Skarphéðinn Bjarnason, Jón Ólafur Bjarnason, Guðrún Jónsdóttir, Jóna Bjarnadóttir og Petrína Jónsdóttir. Myndin er tekin á Hanhóli.
Kristín Halldórsdóttir og fjölskylda
Kristín eða Stína er dóttir Gunnu frænku í Bolungarvík. Fyrir ókunnuga hafa nöfn barna, tengdabarna og barnabarna verið sett inn á myndina.
Kristín Halldórsdóttir og fjölskylda
Atli, Halldóra og Karl ásamt foreldrum, Hallgrími og Kristínu
Ólöf Jóna Jónsdóttir
Jóna Jónsdóttir var seinni kona Bjarna afa. Myndin mun hafa verið tekin af henni áttræðri.
Friðgerður Elín Bjarnadóttir
Friðgerður móðursystir er vissulega aðeins hálfsystir mömmu en systir samt. Hún var gift Benedikt Rúnari Hjálmarssyni sem féll frá langt um aldur fram.
Friðgerður og börn
Friðgerður móðursystir ásamt börnum þeirra Benedikts Rúnars: Ástu, Ívari Erni og Kolbrúnu.
Guðfinna Bjarnadóttir
Gunnhildur Guðfinna Bjarnadóttir hét mamma í höfuðið á hjónunum á Hóli í Bolungarvík en Friðgerður amma og Bjarni afi voru þar þegar mamma fæddist. Þau hétu Gunnar og Guðfinna. Myndin er líklega tekin þegar mamma var vetrarpart á Héraðsskólanum í Reykjanesi.
Guðfinna Bjarnadóttir
Myndin er tekin á Reykjanesi á meðan hún var þar vetrarpart í héraðsskólanum.
Guðfinna með Billu og Heiðu
Árið 1940 fór mamma til Akureyrar til að gæta barna fyrir Kristin Jónsson fósturbróður sinn úr Botni. Hér er hún með tvíburadætur Kristins og Ásthildar Sveinsdóttur, Billu og Heiðu.
Jón Ólafur Bjarnason
Jón Ólafur Bjarnason á yngri árum
Jón Ólafur Bjarnason
Jón Ólafur Bjarnason, Jón frændi, bróðir mömmu
Jón Ólafur og Þorgerður
Jón Ólafur Bjarnason, bróðir mömmu, og kona hans Þorgerður María Gísladóttir.
Rithönd Jóns Ólafs Bjarnasonar
Jón frændi var listaskrifari, hann var örvhentur en þvingaður til að skrifa með hægri hendinni
Bentína og Sigríður Jónsdætur
Jón Ólafur eignaðist Bentínu fyrir hjónaband en Sigríði í hjónabandi með Þorgerði Maríu Gísladóttur.
Sigurjón Skarphéðinsson
Sigurjón tók seinna upp ættarnafnið Svanberg enda voru ættarnöfn í tísku um þær mundir, þ.e. á 2. áratug 20. aldar.
Grétar, Guðlaug og Bjarni
Grétar Svanberg ólst upp hjá Önnu ömmu sinni í Bolungarvík. Hér er hann með frændfólk sitt, Guðlaugu Þorkelsdóttur og til hliðar er Bjarni Halldórsson í kerru.
Bjarni Jón Hjaltalín og Þorkell Jónssynir
Bræðurnir Bjarni og Þorkell keyptu þennan bíl saman en ekki var hægt að aka langt á Bolungarvík á meðan Óshlíðin var ófær.
Sigurjón Skarphéðinsson Svanberg
Sigurjón vissi að maður ætti að rækta garðinn sinn.
Sigurjón Skarphéðinsson Svanberg
Sigurjón lærði til beykis hjá Jóni Jónssyni, föðurbróður sínum, og stundaði þá iðn framan af en að því kom að menn hættu að nota trétunnurnar og þá minnkuðu verkefni beykisins og hann sneri sér að öðru.
Sigurjón Skarphéðinsson Svanberg og Grétar sonur hans
Þó svo að Grétar sonur Sigurjóns Svanbergs hafi verið alinn upp fram yfir fermingu af Önnu Skarphéðinsdóttur heimsótti Sigurjón Grétar á sumrin og við fleiri tækifæri og hafði hann með sér á ferðalögum
Grétar Svanberg Sigurjónsson
Grétar flutti til Noregs og bjó þar til æviloka, giftist og eignaðist syni. Myndin er tekin um borð í Norrænu á leið frá Færeyjum en þá var Grétar á leið í heimsókn til Íslands ásamt seinni konu sinni.
Þorkell Erlendur Jónsson
Þorkell var fjórða barn Önnu Skarphéðinsdóttur og Jóns Ólafs Jónssonar. Þorkell var bifreiðastjóri í Bolungarvík og annaðist um tíma farþegaflutninga milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar.
Jóna og Skarphéðinn Bjarnabörn
Myndin af Jónu frænku og Skarphéðni mun vera tekin í Bolungarvík
Skarphéðinn Bjarnason
Skarphéðinn var yngsta barn Bjarna afa og Friðgerðar ömmu, fæddur 1927
Jóna Bjarnveig Bjarnadóttir
Jóna frænka var næstelst þeirra barna Bjarna og Friðgerðar sem lifðu. Á undan henni hafði mamma fæðst og síðan fimm börn sem dóu öll í eða strax eftir fæðingu. Á eftir henni fæddust tveir drengir sem dóu nýfæddir áður en Jón Ólafur og Skarphéðinn fæddust.
Jóna B Bjarnadóttir og Anna Skarphéðinsdóttir
Myndin er tekin í Bolungarvík af Jónu frænku og Önnu móðursystur hennar.
Bjarnabörn og Friðgerðar
Jón Ólafur, Jóna Bjarnveig, Gunnhildur Guðfinna og Skarphéðinn Sigmundur
Bjarnabörn og Friðgerðar
Sitjandi Skarphéðinn og Jón Ólafur, standandi Guðfinna og Jóna
Frændfólk á ættarmóti
Katrín og Guðlaug Þorkelsdætur, Jón Ólafur Bjarnason, Guðrún Jónsdóttir?, Jóna Bjarnadóttir, Sigurður Frímannsson, Skarphéðinn Bjarnason og Sigríður Jónsdóttir
Sigmundur Viktor Skarphéðinsson
Sigmundur hét í höfuðið á Sigmundi og Viktoríu í Vigur. Hann var nýbyrjaður í námi í Sjómannaskólanum í Reykjavík þegar hann dó í Spænsku veikinni 1918.
Karítas Skarphéðinsdóttir
Karítas er ekki glaðleg á þessari mynd en fékk síðar orð fyrir æðruleysi og lífsgleði.
Petrína Sigrún Skarphéðinsdóttir
Petrína var fyrsta barnið sem Skarphéðinn eignaðist með Pálínu, seinni konu sinni, og Petrína var skírð eftir fyrri konu hans. Petrína eignaðist þrjú börn með Pétri Péturssyni, fyrri manni sínum, en eftir dauða hans giftist hún Magnúsi bróður Péturs og átti með honum sjö börn. Hún var 41 árs þegar hún dó.
Petrína Skarphéðinsdóttir og Kristín Á Ásgeirsdóttir
Kristín Álfheiður Ásgeirsdóttir (t.v.) var 5 árum yngri en Petrína. Þær voru báðar úr Ögursveit en óskyldar.
Petrína Skarphéðinsdóttir
Ekki er vitað hvaða barn er með Petrínu á myndinni
Legsteinn Sigurjóns Skarphéðinssonar og Pálínu Árnadóttur
Sigurjón Skarphéðinsson Svanberg og Guðrún kona hans voru grafin í Hólavallakirkjugarði ásamt Pálínu móður Sigurjóns.
Legsteinn Skarphéðins Elíassonar og Sigmundar
Skarphéðinn og Sigmundur sonur hans voru grafnir saman þó að nærri 20 ár væru á milli dánardægra.
Hítardalur á Mýrum
Jón Jónsson, faðir Matthildar systur Bjarna afa, var alinn upp í Hítardal og átti ættir þar á Mýrum. Hann fór eins og margir af þessum slóðum vestur í Djúp í atvinnuleit, giftist þar en eignaðist ekki börn með Matthildi konu sinni. Að henni látinni fór hann í sjómennsku frá Bolungarvík og fékk Jónu langömmu fyrir ráðskonu. Móðir Jóns hét Guðbjörg.
Hólmberg, Sigríður Bjarnadóttir, Ágústa og Matthildur
Hólmberg, Sigríður Bjarnadóttir, Ágústa og Matthildur
Matthildur Guðbjörg Jónsdóttir og Bjarni B. Bjarnason
Matthildur Guðbjörg Jónsdóttir fór sem ráðskona til Bjarna B. Bjarnasonar á Suðureyri við Súgandafjörð eftir að hann hafði misst konu sína. Matthildur og Bjarni eignuðust tvö börn saman og giftu sig síðan. Þau bjuggu á Suðureyri.
Matthildur Guðbjörg Jónsdóttir og Bjarni B. Bjarnason
Engar myndir virðast hafa verið teknar af fjölskyldu Matthildar nema á sextugsafmæli hennar 1962.
Matthildur, Bjarni og fjölskylda.
Matthildur, Bjarni og fjölskylda á sextugsafmæli Matthildar 11.6.1962. Aftast f.v.: Sigríður, Hólmberg, Kristján, Karl Georg Kristján Guðmundsson, Jóhann og Olga. Fremst f.v.: Ágústa, Matthildur og Kristín Björk. Karl f. 1945 var frá Bæ í Staðardal og síðar bóndi þar. Hann bjó hjá Matthildi og Bjarna á veturna á meðan hann gekk í skóla á Suðureyri.
Matthildur, Bjarni, börn og barnabörn 1962
Matthildur og Bjarni með barnabörn fyrir framan sig. Sigríður dóttir þeirra standandi til vinstri, Karl Georg fóstursonur í miðju og Jóhann Bjarnason lengst til hægri.
Matthildur og Karl Georg
Karl Georg var úr sveitinni utan við Suðureyri en bjó hjá Matthildi og Bjarna á veturna á meðan hann var í skóla.
Matthildur og ömmudætur
Ekki þori ég að segja hver er hvað
Hólmberg og Sigríður með börn
Hólmberg Arason og Sigríður Bjarnadóttir áttu Ágústu, Matthildi og Jónu.
Olga Ásbergsdóttir
Olga var kona Jóhanns Bjarnasonar sem var sonur Matthildar hálfsystur Bjarna afa
María Sigríður Bjarnadóttir og Hólmberg Arason
María Sigríður Bjarnadóttir og Hólmberg Arason. Sigríður var skírð eftir fyrri konu Bjarna föður síns.
Ágústa Hólmbergsdóttir
Gústa var móttökuritari á sjúkrahúsinu á Ísafirði.
Matthildur Bjarney Jóhannsdóttir
Matthildur Bjarney er dóttir Jóhanns sonar Bjarna og Matthildar afasystur.
Kristín Björk Jóhannsdóttir
Kristín Björk var dóttir Jóhanns sonar Bjarna og Matthildar afasystur. Dóttir hennar er Olga Cilia varaþingmaður fyrir pírata.
Kristján Össurarson
Kristján var sonur Vigdísar Steinunnar systur Jónu langömmu. Kristján hafði lítið af móður sinni að segja en ólst upp í Svansvík í Mjóafirði. Hann fórst á báti tæplega þrítugur. Hann var „frumkvöðull í að slétta tún í Reykjafjarðarhreppi og einn af stofnendum Ungmennafélagsins Vísis í Reykjafjarðarhreppi.“
Marteinn Konradsen Venö
Vigdís systir Jónu langömmu giftist norðmanni og fór með honum til Noregs, eignaðist með honum þrjú börn, tvö komust upp. Vigdís var vanheil á geði þegar leið á ævina og dvaldi á stofnun. Marteinn eða Martin fórst með flutningaskipi sem Þjóðverjar grönduðu í seinni heimsstyrjöldinni.
Kristín Guðríður Jónsdóttir
Kristín var systir Jónu langömmu. Hún átti heima á Ísafirði um tíma en flutti til Reykjavíkur. Hún átti fyrst Guðmund Torfason en síðan fimm börn með eiginmanni sínum, Magnúsi Helgasyni.
Magnús Helgason
Magnús var maður Kristínar systur Jónu langömmu. Hann fórst með vélbátnum Agli frá Bolungarvík.
Guðmundur Torfason
Guðmundur var sonur Kristínar systur Jónu langömmu
Elín Magnúsdóttir
Elín var dóttir Kristínar systur Jónu langömmu
Jón Magnússon
Jón var sonur Kristínar systur Jónu langömmu
Helga Magnúsdóttir
Helga var dóttir Kristínar systur Jónu langömmu
Ólöf Magnúsdóttir
Ólöf var dóttir Kristínar systur Jónu langömmu
Helga Magnúsdóttir
Helga var dóttir Kristínar systur Jónu langömmu
Kristín Guðríður Jónsdóttir og fjölskylda
Kristín Guðríður Jónsdóttir og fjölskylda
Eigum við að giska á að Elías sé lengst til vinstri, Guðmundur í miðju og Jón lengst til hægri
Sigríður Mikaelsdóttir
Bjarni Þorláksson hét faðir Bjarna afa, fórst í róðri á Bolungarvík í nóvember 1894. Bróðir Bjarna var Mikael Þorláksson sem átti þessa einu dóttur með Unni konu sinni. Sigríður giftist Þórarni Vagnssyni bátsútgerðarmanni. Þau bjuggu við sunnanverðan Dýrafjörð. Þau áttu átta börn.
Valdemar Þórarinsson
Afi Valdemars var Mikael bróðir Bjarna langafa
Unnur Þórarinsdóttir
Afi Unnar var Mikael bróðir Bjarna langafa
Sigríður Mikaelsdóttir og Þórarinn Vagnsson
Sigríður Mikaelsdóttir og Þórarinn Vagnsson
Kristján Rafn Þórarinsson
Afi Kristjáns var Mikael bróðir Bjarna langafa
Elías Vagn Þórarinsson
Afi Elíasar var Mikael bróðir Bjarna langafa. Eftir Elías liggur ritsafn, kvæði, sögur og leikrit
Ingólfur Þórarinsson
Ingólfur var dóttursonur Mikaels bróður Bjarna Þorlákssonar langafa
Sigríður, Þórarinn og börn þeirra
Sigríður Mikaelsdóttir og Þórarinn Vagnsson ásamt börnum sínum: Jórunni, Aðalheiði, Unni, Kristjáni, Valdemar, Pétri, Elíasi og Ingólfi
Elísabet Jónína Ingimundardóttir
Elísabet var dóttir Ingimundar bróður Jónu langömmu
Þorsteinn Arnórsson
Þorsteinn Arnór Arnórsson var eiginmaður Elísabetar Ingimundardóttur bróðurdóttur Jónu langömmu
Valmundur Jón Þorsteinsson
Afi Valmundar var Ingimundur bróðir Jónu langömmu
Helga Soffía Þorgilsdóttir
Helga Soffía (1896-1996) var seinni kona Þorsteins Arnórssonar sem var áður giftur Elísabetu dóttur Ingimundar bróður Jónu langömmu.
Þórður AS Þorsteinsson
Afi Þórðar var Ingimundur bróðir Jónu langömmu
Valgerður GM Þorsteinsdóttir
Afi Valgerðar var Ingimundur Jónsson bróðir Jónu langömmu
Hulda Valdís Þorsteinsdóttir
Hulda Valdís Þorsteinsdóttir var dóttir Elísabetar Ingimundardóttur en Ingimundur var bróðir Jónu langömmu
Gunnfinna Sesselja Þorsteinsdóttir
Gunnfinna Sesselja var dóttir Elísabetar sem var dóttir Ingimundar bróður Jónu langömmu
Guðrún Ásgeirsdóttir og börn
Guðrún var dóttir Ásgeirs á Látrum í Mjóafirði og hálfsystir Petrínu móður Friðgerðar ömmu. Börn hennar á myndinni eru Kristjana og Jóhannes Þórarinsbörn
Guðrún Ásgeirsdóttir
Guðrún Ásgeirsdóttir var dóttir Ásgeirs Kristjánssonar á Látrum í Mjóafirði og hálfsystir Petrínu móður Friðgerðar ömmu, Önnu og Karitasar.
Ragna Ólafsdóttir
Ólafur faðir Rögnu var bróðir Bjarna og Mikaels Þorlákssona, sem sagt föðurbróðir Bjarna afa.
Kristín Jóna Sigurjónsdóttir
Kristín (1929-2024) var dóttir Sigurjóns Sigurbjörnssonar sem var hálfbróðir Bjarna afa
Sigríður G Guðjohnsen
Sigríður var kona Einars Sigurjónssonar sem var sonur Sigurjóns Sigurbjörnssonar hálfbróður Bjarna afa
Sigurjón Sigurbjörnsson
Sigurjón var hálfbróðir Bjarna afa, ólst upp hjá fósturmóður á Isafirði en flutti síðan til Reykjavíkur.
Sigurjón Sigurbjörnsson
Sigurjón Sigurbjörnsson
Sigurjón Sigurbjörnsson
Sigurjón Sigurbjörnsson
Sigurjón Sigurbjörnsson
Sigurjón Sigurbjörnsson
Guðrún Einarsdóttir
Guðrún var kona Sigurjóns Sigurbjörnssonar sem var hálfbróðir Bjarna afa, sonur Jónu langömmu
Skarphéðinn S Bjarnason
Skarphéðinn S Bjarnason
Skarphéðinn S Bjarnason
Skarphéðinn S Bjarnason
Skarphéðinn S Bjarnason
Skarphéðinn S Bjarnason
Valmynd
Garðshyrningasagan
Brekkugötu- og Beitarhúsaárin
Dalsgerði og Álfheimar
Lerkilundarárin
Myndir eftir 2003
Ýmsar myndir