Fara í efni
Fjölskyldumyndir og saga Garðshyrninga
Myndir
Garðshyrningasagan
Brekkugötu- og Beitarhúsaárin
Dalsgerði og Álfheimar
Lerkilundarárin
Myndir eftir 2003
Ýmsar myndir
Garðshorn
Um Garðshorn
Garðshornsbúar
Ábúendaskrá
Inngangur
Fyrstu ábúendur
Gunnar meðhjálpari
Jón ríki og ættmenni hans
Nágrannabæirnir
Aftur í Garðshorn
Ýmsir ábúendur 1882-1899
Guðmundur, Steinunn og afkomendur
Nýjustu ábúendur í Garðshorni
Saga bygginga
Garðshorn á Þelamörk
Úttekt 1899
Leigusamningur 1905
Garðshornsbærinn um og eftir 1900
Húsaskipan 1940-1990
Önnur úthýsi
Neðri hæð íbúðarhússins
Efri hæðin
Kjallarinn
Ættmennin
Ættartré Garðshornssystkinanna 1943-1954
Föðurættin
Inngangur og heimildir
Flöguselsættin
Ættforeldrar í Flöguseli og börn þeirra
Sigfús Benediktsson
Guðrún Friðfinnsdóttir frá Stóragerði
Hjúskapur og ævilok Sigfúsar og Guðrúnar
Hrakhólafólk á 19. öld
Sigurlaug Sigfúsdóttir
Jóhann Sigurðsson
Ættartré Garðshornssystkinanna 1943-1954
Guðjón Sigfússon
Æsustaðaættin
Foreldrar og æska Steinunnar langömmu
Úr sóknarlýsingu Hólssóknar í Eyjafirði
Systkini Steinunnar Önnu Sigurðardóttur
Viðtal við Gunnlaug og Svanfríði
Gásaættin
Stefán V. Sigurjónsson
Kristfinnur Guðjónsson
Úr „Konan í dalnum og dæturnar sjö“
Laugalandsfólkið
Jarðir í Glæsibæjarhreppi um aldamótin 1900
Guðmundur, Steinunn og Garðshornssystkinin elstu
Helga og Pálmi í Garðshorni
Kári Larsen
Frímann og Margrét á Hamri og Efstalandi
Arnbjörg og Valdemar á Rauðalæk, Kotum og Bólu
Bréfin til Boggu
Bréfin frá 1911 til 1920
Bréfin frá 1921 til 1936
Móðurættin
Barna-Beta
Inngangur
Uppruni og fyrstu börn Elísabetar Jónsdóttur
Jóns þáttur beykis
Útúrdúr um Otta Sveinsson
Elíasar þáttur
Um Sigmund Erlingsson í Vigur
Markúsar þáttur
Ævilok og ættingjar Elísabetar
Skarphéðinn Hinrik Elíasson/Sigmundsson
Petrína og systurnar frá Látrum
Um Skarphéðin og Petrínu
Af Pálínu Árnadóttur og systkinum
Um Skarphéðin og Pálínu
Friðgerður Skarphéðinsdóttir
Bærinn í Botni í Mjóafirði
Um börn Friðgerðar
Anna Skarphéðinsdóttir
Um börn Önnu
Karítas Skarphéðinsdóttir
Petrína Sigrún Skarphéðinsdóttir
Sigmundur Viktor Skarphéðinsson
Sigurjón Skarphéðinsson Svanberg
Bergþóra Skarphéðinsdóttir
Jónubók
Inngangur
Ytribúðafólkið
Barneignir Jónu Jónsdóttur
Afkomendur Jónu
Hafliði Sæmundur Bjarnason
Bjarni Bjarnason
Sigurjón Sigurbjörnsson
Matthildur Guðbjörg Jónsdóttir
Systkini Jónu Jónsdóttur og afkomendur þeirra
Ingimundur Jónsson
Sigurður Jónsson
Vigdís Steinunn Jónsdóttir
Kristín Guðríður Jónsdóttir
Ágúst Guðbjörn Jónsson
Bjarni Þorláksson og fólkið hans
Bjarni Þorláksson
Margrét Þorláksdóttir
Mikael Þorláksson
Ólafur Þorláksson
Þorbjörg Þorláksdóttir
Annað efni
Garður í Garðshorni
Húsið í skóginum 2011
Húsið í skóginum 2012
Húsið í skóginum 2013
Húsið í skóginum 2014
Húsið í skóginum 2015
Húsið í skóginum 2016
Húsið í skóginum 2017
Ýmsar greinar
Hæsti foss í Eyjafirði
Aðalheiður Jónsdóttir
Húsbruni á Grjótgarði
Um fósturbörn og ómaga
Barnafræðsla í Hörgársveit 1910-1963
Sigurlaug Sigfúsdóttir
Jóhann Sigurðsson
Um timburhúsið á Efri-Rauðalæk
Torfbærinn í Baugaseli
Um Brynjólf og Laufeyju í Efstalandskoti
Heimsókn úr Vesturheimi
Ungmennafélögin í Hörgársveit í byrjun 20. aldar
Margt er sér til gamans gert
Gömul býli og bæjanöfn í Hörgársveit
Um Arnþóru Ólafsdóttur
Glefsur úr dagbókum Frímanns Pálmasonar 1921-1946
Lestrarfélag Þelamerkur
Myndir frá Neðri-Rauðalæk
Dagbókarfærslur Frímanns Pálmasonar 1921 til 1946
Minnisbók fyrir árið 1921
Janúar 1921
Febrúar 1921
Mars 1921
Apríl 1921
Maí 1921
Júní 1921
Júlí 1921
Minnisbók fyrir árið 1922
Minnisbók fyrir árið 1923
Minnisbók fyrir árið 1932
Minnisbók fyrir árið 1934
Október 1934
Nóvember 1934
Desember 1934
Minnisbók fyrir árið 1935
Janúar 1935
Febrúar 1935
Mars 1935
Minnisbók fyrir árið 1936
Janúar 1936
Febrúar 1936
Mars 1936
Apríl 1936
Maí 1936
Júní 1936
Júlí 1936
Ágúst 1936
September 1936
Október 1936
Minnisbók fyrir árið 1942
Apríl 1942
Maí 1942
Júní 1942
Júlí 1942
Ágúst 1942
September 1942
Minnisbók fyrir árið 1943
September 1943
Október 1943
Nóvember 1943
Desember 1943
Minnisbók fyrir árið 1944
Janúar 1944
Febrúar 1944
Mars 1944
Apríl 1944
Maí 1944
Júní 1944
Júlí 1944
September 1944
Október 1944
Nóvember 1944
Desember 1944
Minnisbók fyrir árið 1945
Janúar 1945
Febrúar 1945
Mars 1945
Apríl 1945
Maí 1945
Júní 1945
September 1945
Október 1945
Nóvember 1945
Desember 1945
Minnisbók fyrir árið 1946
Janúar 1946
Febrúar 1946
Mars 1946
Apríl 1946
Kveðskapur Guðfinnu Bjarnadóttur
Minning um Bjarna Frímannsson
Heimagerðar lífsreynslubögur
Vestfjarðaljóð
Búkonuvísur
Húsfreyjuljóð
Vísur um heimilisfólkið í Botni
Til Þelamerkurskólans
Kveðskapur Pálma Frímannssonar
Lofgjörð til Reykjavíkur
Raunakvæði
Ástand í pólitíkinni
Jólasálmur
Andleysi
Um Kanasjónvarpið
Vorljóð
Lánsbotnar
Piparsveinalíf
Efnahagsmál
Um ástina
Til meinatækna
Hljóðskrár
Viðtöl
Barnahjal og söngur
Bjössi afi
Upplestur fyrir barnabörnin
Íslenska
Forsíða
/
Myndir
/
Ýmsar myndir
/
Norðanættarmyndir
Norðanættarmyndir
92 stk.
22.10.2020
Ýmsar myndir sem tengjast föðurættinni með einum eða öðrum hætti.
Garðshorn fyrir eða um 1940
Húsið var byggt 1932 en fljótlega fóru að sjást skemmdir í múrhúð sunnan á húsinu. Þær sjást ekki hér þannig að myndin er tekin ekki löngu eftir að húsið var byggt.
Garðshorn um 1944
Fáar myndir eru til af Garðshorni að vetrarlagi.
Garðshorn um 1940
Líklega hefur Kristfinnur Guðjónsson tekið þessa mynd. Helga húsmóðir í Garðshorni frá 1899 til 1947 stendur fyrir dyrum.
Garðshorn 1936
Ártalið 1938 eða 1939. Búið er að steypu upp veggi fjárhúss sem sagt er að hafi verið byggt ásamt hlöðu 1939.
Kýrnar í Garðshorni um 1940
Hér ræðir Helga Sigríður við kýrnar sínar. Torfþak er enn á fjósinu og þykkur moldarveggur milli þess og baðstofunnar sem stendur enn en búið að steypa upp vegg framan við hana.
Garðshorn um 1940. Símalínan úr Skagafirði til Akureyrar er sýnileg, óvíst hvenær hún var lögð.
Garðshorn 1938
Ekki sjást merki um að byrjað sé að byggja fjárhúshlöðuna sem var byggð 1939 en búið er að steypa upp fjóshlöðuna sem var byggð 1936.
Garðshorn um 1942
Hér er búið að byggja fjárhús og fjárhúshlöðu
Garðshorn um 1938
Fáar myndir eru til af Garðshorni að vetrarlagi. Fjóshlaðan er komin en hér ætti að sjást í fjárhúshlöðuna ef hún hefði verið byggð.
Garðshorn um 1960
Hér er nýbúið að hækka vesturvegginn á skúrnum sem var gert rétt fyrir 1960
Steindór með Grána
Hesturinn hét e.t.v. ekki Gráni og gæti hafa heitið Grána eða bara eitthvað annað. Lengst til vinstri á myndinni er hesthús sem stóð út og niður á túninu og hægra megin er uppborið hey sem hefur líklega verið við fjárhús sem stóðu skammt ofan við hesthúskofann. Myndin er því tekin fyrir 1939 en þá var nýtt fjárhús byggt.
Steindór á baki
Hér er Steindór kominn á bak á Grána eða Gránu. Hesthúskofinn er á bak við hann og hægra megin sést í uppborið hey við fjárhúsið sem stóð utan og neðan við Garðshornsbæinn.
Garðshorn 1967
Þessa mynd tók GFr á myndavél sem Bragi Sigurðsson lánaði honum í Írlandsferð 5. bekkjar MA vorið 1967. Myndin er tekin í lok maí eða í byrjun júní. Þetta mun vera fyrsta litmyndin sem til er af Garðshorni.
Garðshorn 2005
Búið er að klæða íbúðarhúsið utan og byggja nýtt fjárhús og hlöðu.
Garðshorn í september 2018
Nú hefur bæst við reiðskemma norðan við gamla fjósið. Gamli bragginn stendur enn en hefur verið málaður.
Fjárhúsin í Garðshorni frá 1939
Fjárhúsin sem byggð voru 1939 eru hér líklega nýlega byggð
Fjárhúsin í Garðshorni
Framan við fjárhúsin var framan af hausti haugur af taði sem stungið var út úr húsunum eftir að heyskap var lokið. Ekki þótti gott að stinga út úr húsunum seinni hluta vetrar því að þá þurftu lambfullar ærnar að rísa meira upp til að ná upp á garðann.
Kýr uppi í hólfi
Hér eru Steini og kaupamaður að stússa við kýr ofan við bæ. Þar voru steyptir hliðstólpar. Steini og Jóhanna voru í Garðshorni 1944-1946 og á þeim tíma hefur myndin verið tekin.
Steini og Jóhanna með Fríðu
Þetta er Fríða frekar en Pálmi en hvort tveggja getur þó verið. Jóhanna tók Pálma mikið að sér á meðan hún var í Garðshorni á árunum 1944-1946.
María Pálsdóttir
Guðmundur Sigfússon langafi átti hálfsystur sem hét Sigurlaug eða Sigurlög eins og nafnið var yfirleitt skrifað. Sigurlaug eignaðist tvö börn með Páli Pálssyni á Möðrufelli, Maríu og Guðjón, en hann giftist síðan annarri. María var eldri en Guðjón Pálsson. Hún giftist Friðrik Jósefssyni og átti með honum 7 börn.
Margrét Friðriksdóttir
Margrét Sigríður Friðriksdóttir var næstelst barna Maríu Pálsdóttur og Friðriks Jósefssonar. Hún átti þrjár dætur með þremur mönnum og er mikill ættleggur frá henni kominn.
Hólmfríður Sigurðardóttir
Hólmfríður Sigurðardóttir var systir Steinunnar Önnu langömmu, konu Guðmundar Sigfússonar. Hólmfríður var amma Hólmfríðar Sigfúsdóttur í Villingadal.
Fremrikot
Gamli bærinn á Fremrikotum í Norðurárdal. Þangað flutti Arnbjörg systir Pálma afa árið 1910 og þaðan flutti hún í Bólu í Blönduhlíð.
Bóla
Gamli bærinn í Bólu í Blönduhlíð. Þangað flutti Arnbjörg systir Pálma afa 1924. Litlar breytingar höfðu orðið á húsakosti þegar Frímann Pálmason og fleiri heimsótti Guðmund Valdemarsson í Bólu 1975 nema þar hafði verið reistur eða þangað fluttur timburskúr sem Guðmundur bjó í en gömlu húsin að hruni komin.
Arnbjörg Guðmundsdóttir
Arnbjörg var systir Frímanns á Efstalandi og Pálma í Garðshorni. Hún fór sem ráðskona til Valdemars H Guðmundssonar sem þá bjó á Efri-Rauðalæk og giftist honum. Þau fluttu þaðan 1910 í Fremrikot í Norðurárdal og 1924 fluttu þau í Bólu í Blönduhlíð. Á árunum 1908 bjuggu þau á Rauðalæk, Frímann bróðir hennar á Hamri og Pálmi, eldri bróðirinn, í Garðshorni.
Gunnar Valdemarsson
Gunnar á Kotum (1907-1975) var sonur Arnbjargar systur Pálma afa og Valdemars H Guðmundssonar. Gunnar keypti jörðina Fremrikot 1937 og bjó þar til dauðadags. Synir hans tveir, Valdemar og Jón Gunnar, bjuggu þar eftir hann.
Gunnar á Kotum, Sigurlaug kona hans og eitthvert barnanna
Gunnar á Kotum var giftur Sigurlaugu Stefánsdóttur. Börn þeirra eru/voru Arnbjörg Steinunn, Valdemar Helgi, Guðmundur Kári, Reynald Smári og Jón Steinar.
Gunnar og Sigurlaug á Kotum
Gunnar á Kotum var giftur Sigurlaugu Stefánsdóttur (1919-1982). Börn þeirra eru/voru Arnbjörg Steinunn (1939-1997), Valdemar Helgi (1941-2017), Guðmundur Kári (1945), Reynald Smári (1948) og Jón Steinar (1952).
Gunnar Valdemarsson
Gunnar Valdemarsson á Kotum á yngri árum, líklega er myndin tekin á meðan hann var að alast upp á Fremrikotum.
Guðmundur Valdemarsson
Guðmundur bóndi í Bólu á yngri árum. Hann var bróðir Gunnars á Kotum en bjó í Bólu með föður sínum. Guðmundur var ógiftur og barnlaus.
Ólafur Ólafsson og Arnbjörg Steinunn Gunnarsdóttir
Óli í Garðshorni var af Syðri-Bægisárættinni og frá Bústöðum. Við (GFr) vorum fjórmenningar. Arnbjörg var frá Fremrikotum en Arnbjörg amma hennar var systir Pálma afa. Við Arnbjörg vorum því þremenningar.
Frímann Guðmundsson
Frímann Guðmundsson (1878-1926) var bróðir Pálma afa. Frímann og Margrét (1876-1956) kona hans, systir Steina á Hvannavöllum, bjuggu fyrst í Garðshorni 1905-1908 á móti Páma á meðan hann lá í berklum en þá fluttu þau í Hamar og þaðan í Efstaland þar sem Frímann lést 1926.
Margrét Egedía Jónsdóttir
Margrét var dóttir Sigurbjargar Jónsdóttur frá Laugalandi og Jóns Júlíusar Árnasonar ljósmyndara og þúsundþjalasmiðs. Hún var gift Frímanni Guðmundssyni og bjó með honum í Garðshorni, á Hamri og Efstalandi en eftir dauða Frímanns var hún á Grjótgarði og Laugalandi en síðustu árin hjá Guðmundi syni sínum á Hjalteyri
Guðmundur Frímannsson
Guðmundur Júlíus Frímannsson (1910-1986) var sonur Frímanns og Margrétar á Efstalandi, fæddur á Hamri. Hann fór í Kennaraskólann og starfaði sem kennari og skólastjóri, m.a. lengi á Hjalteyri en síðast á Akureyri.
Ásta Frímannsdóttir
Ásta (1921-1996) var yngsta dóttir Frímanns og Margrétar á Efstalandi og þar fæddist hún. Hún giftist til Húsavíkur og bjó þar til æviloka.
Ásta Frímannsdóttir
Ásta var langyngst barna Margrétar og Frímanns á Efstalandi. Hin systkinin voru Sigurbjörg Steinunn Anna (1906-1991), Guðmundur Júlíus (1910-1986) og Anna Guðrún (1912-1995).
Aðalbjörg Þorkelsdóttir
Aðalbjörg var barnsmóðir Guðjóns Sigfússonar (1845-1894) bróður Guðmundar (1843-1904) langafa. Hún var Þingeyingur.
Helga Sigríður Gunnarsdóttir
Helga (1875-1958) fæddist á Sólborgarhóli í Kræklingahlíð en faðir hennar lést þegar hún var fjögurra ára. Þá fór móðir hennar með 3 systur hennar til bróður síns á Syðri-Bægisá en þegar Helga var 8 ára fór hún með Guðrúnu systur sinnar í Ytri-Bægisá þar sem Guðrún var vinnukona en síðar var Guðrún vinnukona á nokkrum bæjum í Kræklingahlíð og hafði Helgu með sér. Helga giftist Pálma Guðmundssyni (1876-1947) og bjó með honum eitt ár á Grjótgarði en flutti með honum og fjölskyldu hans í Garðshorn á Þelamörk þar sem hún var húsfreyja í nærri hálfa öld. Síðustu 11 árin átti hún heima á Akureyri hjá börnum sínum, Steindóri og Jóhönnu.
Helga og Steindór
Helga Sigríður Gunnarsdóttir og Steindór Guðmundur Pálmason (1901-1986) töldust ábúendur í Garðshorni 1927 til 1947. Steindór var bóndi og þegar á leið var farið að telja Frímann, bróður hans, bónda þar líka. Helga móðir þeirra var ráðskona. Frá 1943 bjuggu Steindór og Helga "á hálflendunni" á móti Frímanni og Guðfinnu.
Helga S Gunnarsdóttir og Helga Frímannsdóttir
Myndin af þeim nöfnum hefur verið tekin á ljósmyndastofu á Akureyri 1948.
Garðshornssystkini
Garðshornssystkinin Frímann, Jóhanna og Steindór Pálmabörn ásamt Kára Larsen sem var tekinn í fóstur í Garðshorni skömmu eftir fæðingu 1913 og alinn þar upp til fullorðinsaldurs.
Frímann Pálmason
Frímann Pálmason (1904-1980)
Frímann Pálmason
Frímann Pálmason
Frímann Pálmason
Frímann Pálmason
Frímann Pálmason
Frímann Pálmason
Frímann Pálmason
Frímann Pálmason
Frímann og Steindór með hrúta
Ekki er vitað um tilefni þessarar myndatöku, ókunnugt er um verðlaunahrúta í Garðshorni
Einar G Jónasson
Einar Gísli Jónasson (1885-1977) var barnakennari á Þelamörkinni og síðar hreppstjóri í Glæsibæjarhreppi. Hann átti heima á Laugalandi. Hann var í miklum metum hjá Frímanni í Garðshorni.
Grímur Valdemarsson
Grímur Benedikt Valdemarsson (1898-1986) var sonur Ingibjargar systur Helgu ömmu í Garðshorni. Hann var bróðir Péturs á Neðri-Rauðalæk, starfaði sem smiður á Akureyri.
Jón Jónsson á Skjaldarstöðum
Jón á Skjaldarstöðum var elstur fimm systkina og stóð fyrir búi þar ásamt móður sinni og systur á meðan þeirra naut við. Eftir að Ragnheiður systir hans féll frá bjó Jón áfram og fóstraði Baldur Ragnars son hennar. Steindór Kristfinnsson var líka í fóstri hjá Jóni á Skjaldarstöðum en þá var Jón ekki orðinn einsetumaður.
Sigríður Manasesdóttir
Sigríður (1937-2019) var dóttir Aðalheiðar systur Jóns á Skjaldarstöðum og Manasesar sem var bróðir Kristfinns Guðjónssonar sem ólst upp í Garðshornsfjölskyldunni, lengst hjá Arnbjörgu á Kotum. Sigríður bjó lengi í Glæsibæ með Davíð Guðmundssyni, manni sínum.
Kristján Frímannsson og Gunnrún
Þetta er fermingarmynd af Kristjáni Frímannssyni (1928-2010) en af einhverjum ástæðum hefur þessari Gunnrúnu, sem var kaupakona á Neðri-Rauðalæk, verið stillt upp við hlið hans. Líklega hét hún Gunnrún Jensína Ásgeirsdóttir og var frá Hnífsdal.
Ólöf Þórðardóttir
Ólöf þessi eða Óla eins og hún var kölluð hét líklega Ólöf Sigurrós Þórðardóttir (1916-1971). Hún var kaupakona í Garðshorni en ekki er vitað hvenær. Til er önnur mynd af Ólu þar sem hún hefur verið í útreiðartúr með Garðshornsbræðrum.
Pálína Magnúsdóttir
Pálína (1885-1966) var móðir Kára Larsen. Magnús faðir hennar og Helga í Garðshorni voru systrabörn, Magnús sonur Helgu Andrésdóttur og Helga dóttir Jóhönnu.
Bólusetningarvottorð Kára Larsen
Þetta bólusetningarvottorð hefur varðveist með öðru gömlu dóti. Af einhverjum ástæðum hefur Aðalheiður Jónsdóttir á Skjaldarstöðum gefið vottorðið út en hún þjónaði sem ljósmóðir í Öxnadal og Skriðuhreppi. Þórdís ljósmóðir á Þelamörk/Glæsibæjarhreppi var nýlega látin þegar þetta var.
Rithönd Frímanns Guðmundssonar
Rithönd Frímanns Guðmundssonar
Bólusetningarvottorð Frímanns Pálmasonar
Bólusetningarvottorð Frímanns Pálmasonar
Rithönd Frímanns Guðmundssonar
Rithönd Frímanns Guðmundssonar
Rithönd Jóhönnu Guðrúnar Pálmadóttur
Rithönd Jóhönnu Guðrúnar Pálmadóttur
Rithönd Frímanns Pálmasonar
Rithönd Frímanns Pálmasonar
Rithönd Kristfinns Guðjónssonar
Rithönd Kristfinns Guðjónssonar. Kristfinnur var þó ekki að skrifa dóttur sinni heldur skrifaði hann - eins og fleiri - bréf Steinunnar langömmu til Arnbjargar dóttur sinnar.
Rithönd Margrétar E Jónsdóttur
Rithönd Margrétar E Jónsdóttur
Rithönd Pálma Guðmundssonar
Rithönd Pálma Guðmundssonar
Rithönd Pálma Guðmundssonar
Rithönd Pálma Guðmundssonar
Rithönd Sigurbjargar Steinunnar Önnu Frímannsdóttur
Rithönd Sigurbjargar Steinunnar Önnu Frímannsdóttur
Rithönd Steindórs Pálmasonar
Rithönd Steindórs Pálmasonar
Rithönd Steinunnar Önnu Sigurðardóttur
Rithönd Steinunnar Önnu Sigurðardóttur
Rithönd Steinunnar Önnu Sigurðardóttur
Rithönd Steinunnar Önnu Sigurðardóttur
Stefán V Sigurjónsson
Stefán V Sigurjónsson (1886-1973) var tekinn í fóstur til Steinunnar og Guðmundar sem þá bjuggu á Grjótgarði. Stefán var niðursetningur en varð síðar oddviti í hreppsnefnd Glæsibæjarhrepps. Stefán varð hluti af Garðshornsfjölskyldunni þó að hann færi til foreldra sinna um fermingu eða um það leyti sem Steinunn og Guðmundur fluttu í Garðshorn. Stefán bjó á Blómsturvöllum.
Sigríður Pálsdóttir
Sigríður Guðrún Pálsdóttir (1891-1959) var kona Stefáns á Blómsturvöllum
Sigrún og Hulda Jóhannsdætur
Sigrún og Hulda Jóhannesdætur voru dætur Sigurbjargar Ágústsdóttur en Sigurbjörg var dóttir Helgu systur Steinunnar langömmu.
Sigrún Jóhannesdóttir
Sigrún dóttir Sigurbjargar dóttur Helgu systur Steinunnar langömmu
Sigurbjörg Ágústsdóttir og Sigurbjörg Kristfinnsdóttir
Þessar Sigurbjargir voru óskyldar en sú eldri fóstraði þá yngri. Sigurbjörg Ágústsdóttir tók í fóstur Sigurbjörgu dóttur Kristfinns Guðjónssonar þegar foreldrar hennar veiktust bæði. Fósturmóðir Kristfinns var móðursystir Sigurbjargar eldri.
Sigurbjörg Ágústsdóttir með Svafar
Sigurbjörg Ágústsdóttir með Svafar Jóhannesson, son sinn
Pálína og Baldur Stefánsbörn
Pálína og Baldur voru börn Stefáns á Blómsturvöllum. Stefán lét einn son sinn heita Frímann eftir Frímanni Guðmundssyni á Efstalandi.
Hulda Jóhannesdóttir
Hulda Jóhannesdóttir dóttir Sigurbjargar dóttur Helgu Sigurðardóttur frá Æsustöðum
Rósa Pálína og Sigurbjörg Kristfinnsdætur
Rósa Pálína (Didda) og Sigurbjörg (Góa) voru dætur Kristfinns Guðjónssonar
Hulda Brynja og Sigríður Steingrímsdætur
Hulda Brynja og Sigríður dætur Steingríms Baldvinssonar og Guðrúnar Gunnarsdóttur á Búðarhóli. Guðrún var systir og fóstra Helgu Sigríðar í Garðshorni.
Hallfríður, Anna og Jóhanna
Hallfríður Rósantsdóttir (Fríða á Hamri) (1898-1988), Anna Sigurjónsdóttir ljósmóðir (Anna á Þverá) (1899-1968) og Jóhanna Pálmadóttir (1899-1989) áður húsfreyja í Garðshorni og Bryta. Myndin er tekin í Garðshorni undir smíðahúsglugganum.
Ingibjörg Sveinsdóttir með Garðshornsbörnin
Ingibjörg (Dadda) (1932-2010) var stundum barnfóstra í Garðshorni, er hér með Gunnar í fanginu, Pálmi og Fríða hjá. Gunnar kenndi eitthvert sinn í öldungadeild og í lok fyrsta tíma kom Dadda og kynnti sig, sagðist hafa skipt á kennaranum á hans yngri árum. Hún hlýtur að hafa fengið góða einkunn. Ingibjörg var systir Ástu (Ásthildar) konu Kristins flugmarskálks.
Steingrímur Pétursson
Steingrímur Pétursson var sonur Péturs og Kristínar á Neðri-Rauðalæk, faðir Péturs sem ólst þar upp um leið og Garðshornssystkinin frændsystkini hans.
Þórdís Sumarliðadóttir
Þórdís Sumarliðadóttir var dóttir Pálínu dóttur Guðjóns Sigfússonar sem var bróðir Guðmundar Sigfússonar í Garðshorni.
Helgi Eyfjörð Sumarliðason
Helgi Eyfjörð Sumarliðason var bróðir Þórdísar, sonur Pálínu dóttur Guðjóns Sigfússonar sem var bróðir Guðmundar Sigfússonar í Garðshorni.
Pálína Guðjónsdóttir
Pálína Guðjónsdóttir var dóttir Guðjóns Sigfússonar Benediktssonar frá Flöguseli. Pálína giftist Sumarliða Ólafssyni og átti með honum þrjú börn, Alfreð, Þórdísi og Helga Eyfjörð.
Aðalrós Ólafsdóttir
Aðalrós Ólafsdóttir var kona Egils Hólm Haraldssonar og móðir Olgu Hólm sem var móðir Rósalindar Vigfússon, kórstjóra m.m. í Árborg.
Bárður Sigurðsson og fjölskylda
Bárður Sigurðsson var bróðir Steinunnar langömmu í Garðshorni. Hann fór til Kanada 1878 ásamt Jóhannesi bróður sínum. Kona hans hét Kristín Tómasdóttir og börnin Fanney og Jón
Gunnlaugur Haraldsson
Gunnlaugur Hólm Haraldsson var sonur Haralds Sigurðssonar bróður Steinunnar langömmu. .
Alan og Elva Raymond
Elva Raymond er barnabarn Lúðvíks Hólm Haraldssonar en Haraldur var bróðir Steinunnar langömmu. Elva og Alan heimsóttu Ísland sumarið 2019 og hittu frændfólk á Akureyri og víðar.
Fjölskyldan á Fremrikotum
Guðmundur í Bólu, Kári, Reynald og Valdemar í aftari röð. Jón Gunnar, Gunnar, Sigurlaug og Arnbjörg Steinunn í fremri röð.
Hallfríður Rósantsdóttir
Hallfríður Rósantsdóttir - Fríða á Hamri. Fríða flutti með foreldrum og systkinum frá Efstalandi í Hamar 1917 þegar Frímann og Margrét fluttu í Efstaland. Fríða og Þorleifur bjuggu siðan á Hamri til 1968 en þá dó Þorleifur. Fríða bjó eftir það hjá Sigurði Sigmarssyni fóstursyni þeirra á Akureyri en þau fóstruðu líka bróður hans Ingvar Hóseas (Hósa, 1927-1993). Hún dó 1988.
Þorleifur Rósantsson
Þorleifur Rósantsson (1895-1968) á Hamri - Lolli á Hamri kölluðu sumir hann, það var þó ekki gert í Garðshorni. Þorleifur var snjall hagyrðingur. Þorleifur tók við búi af foreldrum sínum um 1923 og bjó á Hamri til dauðadags.
Bjarni Rósantsson
Bjarni Rósantsson var bróðir Fríðu og Þorleifs á Hamri. Hann var múrarameistari á Akureyri.
Valmynd
Garðshyrningasagan
Brekkugötu- og Beitarhúsaárin
Dalsgerði og Álfheimar
Lerkilundarárin
Myndir eftir 2003
Ýmsar myndir